
Fyrsta heyrnartækið sem gerir allt - án þess að sjást!
Zeal frá Oticon munu breyta því hvernig þú hugsar um heyrnartæki. Zeal hafa allt sem þú gætir óskað þér – svo fyrirferðarlítil að enginn tekur eftir þeim í eyrunum þínum.
Úrval hágæða heyrnartækja
Oticon hefur verið leiðandi í þróun heyrnartækja í áratugi og er þekkt fyrir framsækna tækni sem byggir á vísindarannsóknum og skilningi á því hvernig heilinn vinnur úr hljóðum.
Við bjóðum upp á hágæða heyrnartæki frá Oticon og heildstætt úrval heyrnarlausna sem eru sniðnar að einstaklingsbundnum þörfum, þar á meðal smáforrit (app) og aukabúnað fyrir heyrnartæki.

Hleðslustöðvar og aukabúnaður fyrir heyrnartæki
Í dag eru flest heyrnartæki frá Oticon endurhlaðanleg. Með endurhlaðanlegum heyrnartækjum losnar þú við umstangið sem fylgir reglulegum rafhlöðuskiptum.
Við bjóðum einnig upp á þráðlausan aukabúnað eins og sjónvarpsbox sem gerir þér kleift að streyma hljóði beint úr sjónvarpi í heyrnartækin.
App (Smáforrit) fyrir heyrnartæki
Oticon hefur þróað sérstakt app fyrir heyrnartækjanotendur. Appið gerir þér kleift að stilla hljóðstyrk heyrnartækjanna og skipta á milli ólíkra hlustunarstillinga.
Þú getur einnig fylgst með hleðslustöðu á rafhlöðunni og látið appið leita að heyrnartækjunum ef þau týnast.
Það er ekki nauðsynlegt að vera með appið til að nota heyrnartækin frá Oticon. Það er valkvæður möguleiki.






