Þráðlaus hljóðstreyming frá iPhone, iPad og Android-símum

Þú getur auðveldlega streymt símtali, tónlist eða hljóðbók frá iPhone eða iPad í Oticon heyrnartæki. Flestir Android-símar bjóða einnig upp á þráðlausa hljóðstreymingu frá síma í heyrnartæki.


Þar sem tæknin breytist fljótt og nýir símar koma reglulega á markað þá er best að skoða lista yfir samhæfa síma með heyrnartækjum frá Oticon.

Smáforrit (app) fyrir Oticon heyrnartæki

Companion smáforritið veitir þér aukna stjórn á heyrnartækjunum í hvaða aðstæðum sem er. Með smáforritinu getur þú stillt hljóðstyrk eða skipt á milli hlustunarstillinga eftir þörfum.


Smáforritið gerir þér einnig kleift að fylgjast með rafhlöðustöðu í heyrnartækjunum. Þú getur einnig notað það til að leita að heyrnartækjunum ef þau týnast og margt fleira. Smáforritið er hannað til að einfalda notkun og styðja við daglegt líf með heyrnartækjum frá Oticon. Notkun smáforrits með Oticon heyrnartækjum er valkvæð.

Skjár snjallsíma sem sýnir hreyfimyndatónjafnara í gullnum og gráum litum.
Viðmót fyrir farsímaforrit sem sýnir hljóðstýringar með hljóðstyrksrennistikum og stillingum.
Svartur USB-C millistykki með USB-C tengi og USB-C tengi.

Easy LE millistykki

Easy LE millistykki er einföld og nett lausn til að tengja Android síma, spjaldtölvur eða tölvur með USB-C við heyrnartæki með LE Audio tækni. Njóttu tónlistar, hlaðvarpa og handfrjálsra símtala með skýru, hágæða hljóði í gegnum nýjustu Bluetooth® LE Audio tæknina.


Það tekur eingöngu örfáar sekúndur að para Easy LE millistykkið við símann. Síminn þarf að vera með USB-C port. Þú getur auðveldlega tekið millistykkið úr símanum og fært í annað tæki.


Verð: 13.500 kr.

ConnectClip

Þú getur breytt heyrnartækjunum þínum í þráðlaus heyrnartól með ConnectClip og streymt hljóði úr snjallsímanum þínum í heyrnartækin.


ConnectClip er með innbyggðum hljóðnema sem gerir þér kleift að nota farsímann alveg handfrjálst. Þú getur einnig notað ConnectClip sem fjarhljóðnema, t.d. á fyrirlestrum. Hljóðnemann er hægt að festa á þann sem talar og þannig streymist hljóð frá fyrirlesara beint í heyrnartækin þín.


Drægni er allt að 20 metrar.


Verð: 52.000 kr.

Svart Bluetooth heyrnartól með silfurlituðum rofa.
Svartur Atizan kassi með appelsínugulum og bláum stöðuljósum á hvítum bakgrunni.

Sjónvarpsbox

Sjónvarpsbox frá Oticon gerir þér kleift að njóta sjónvarpsáhorfs á þeim hljóðstyrk sem hentar þér, á meðan aðrir í fjölskyldunni geta haft hljóðið á sínum kjörstyrk.


Streyming á hljóðinu er hröð sem tryggir að hljóð og mynd haldast í fullkomnum takti á sjónvarpsskjánum. Ef þú ert með Companion snjallforritið uppsett í farsímanum þínum þá getur þú notað það til að hækka og lækka streymingu hljóðstyrks frá sjónvarpsboxi í heyrnartækin.


Drægni er allt að 15 metrar.


Verð: 32.000 kr.