Maður og kona takast í hendur í nútímalegu skrifstofuumhverfi. Konan brosir, svipbrigði mannsins eru hlutlaus.

Fagleg og persónuleg þjónusta

Við erum stolt af því að vera fjölskyldufyrirtæki og leggjum mikið upp úr því starfsmenn vinni saman að því markmiði að veita viðskiptavinum bestu mögulegu þjónustu með fagmennsku að leiðarljósi.


Við trúum því að góð heyrnarþjónusta sé ekki einungis fólgin í tæknilegri lausn - heldur því að skilja hvern einstakling, aðstæður, þarfir og væntingar.


Starfsfólk Heyrnartækni sækir reglulega námskeið og fyrirlestra til að bæta við þekkingu í heyrnarfræðum, nýjustu tækni og meðferð heyrnarskerðingar.

Einstaklingsmiðuð ráðgjöf

Upplifun og áhrif heyrnarskerðingar er einstaklingsbundin og meðferð heyrnarskerðingar þarf að taka tillit til þess.


Við gefum okkur tíma til að ræða daglegar aðstæður, helstu áskoranir varðandi heyrnina, lífstíl og þætti sem skipta máli varðandi val á heyrnartækjum.


Við útskýrum mögulegar lausnir og ræðum kosti og takmarkanir hverrar leiðar. Þú tekur upplýsta ákvörðun og við styðjum þig í gegum allt ferlið.