Kona í silkiblússu brosir til manns sem er með heyrnartæki; þau sitja við skrifborð.

Þrýstingsmæling (Tympanometry)

Þrýstingsmæling er einföld og sársaukalaus mæling sem gefur mikilvægar upplýsingar um starfsemi miðeyrans. Í þrýstingsmælingu mælum við hvernig þrýstingur og hreyfanleiki hljóðhimnunnar breytist við mismunandi loftþrýsting.


Þrýstingsmæling er framkvæmd þegar grunur vaknar um vandamál í miðeyra. Mælingin hjálpar til við að greina hvort þú sért t.d. með undirþrýsting í miðeyra, óeðlilega mótstöðu hljóðhimnu, stífleika í beinkeðju, ístaðshersli (otosclerosis) eða vökva í miðeyra.

Hljóðviðbragðsmæling (Acoustic Reflex)

Hljóðviðbragðsmæling er gjarnan notuð til að greina vandamál í miðeyra, innra eyra eða heyrnartauginni. Hljóðviðbragð (acoustic reflex) er lægsti hljóðstyrkur sem þarf til að framkalla samdrátt í stapedius-vöðvanum í miðeyranu. Samdráttur í stapedius-vöðvanum á sér stað samtímis í báðum eyrum við ákveðið hljóðáreiti. Hægt er að mæla þennan samdrátt í eyranu sömu megin og hljóðáreitið (ipsilateral) eða gagnstæðu megin (contralateral). Niðurstöður reflex-mælingar geta veitt mikilvægar upplýsingar og eru hluti af heyrnargreiningu í ákveðnum tilfellum.

Maður að stilla svart heyrnartæki á bak við eyrað.

REM mæling (Real Ear Measurement)

REM mæling er notuð til að mæla nákvæmlega og stilla hljóðmögnun frá heyrnartæki inni í eyrnargöngum.


Örþunn hljóðslanga er sett inn í eyrað til að mæla náttúrulegan hljómburð eyrans. Heyrnartækið er síðan sett í eyrað og óskiljanleg talblanda (sex ólík tungumál) er spiluð í þrem styrkleikum. Mögnun heyrnartækjanna er síðan stillt nákvæmlega eftir niðurstöðu úr REM mælingunni.


Heildarframkvæmd REM mælingar getur tekið allt að 30 mínútur.

ACT mæling  (Audible Contrast Threshold)

ACT er ný mæliaðferð sem áætlar getu einstaklinga til að heyra tal í hávaða. ACT mæling byggir á niðurstöðum úr heyrnarmælingu og er framkvæmd að heyrnarmælingu lokinni.


Í ACT mælingu eru heyrnartól sett yfir eyrun og þú kemur til með að heyra stöðugan hávaða. Inn á milli kemur hljóðmerki sem hljómar eins og sírena. Prófið felst í því að reyna að greina sírenuhljóðið í gegnum hávaðann. Mælingin tekur eingöngu um 2-3 mínútur og gefur góðar vísbendingar um hvernig þér gengur að heyra tal í hávaða.

Graf með titlinum „Rakningarslóð“ með sveiflukenndri línu, hitamælingum fyrir ofan og grænum og svörtum punktum.