
Endurhlaðanleg heyrnartæki
Í dag eru flest heyrnartæki með endurhlaðanlegum rafhlöðum. Með því að velja endurhlaðanleg heyrnartæki losnar þú við að skipta reglulega um rafhlöðu þegar hún klárast. Þú þarft bara að setja tækin í hleðslu þegar þú ferð að sofa.
Við ráðleggjum þér að geyma heyrnartækin í hleðslustöðinni þegar tækin eru ekki í noktun. Hægt er að velja milli þess að fá borðhleðslustöð eða ferðahleðslustöð.
Borðhleðslustöð fyrir heyrnartæki
Borðhleðslustöð frá Oticon er hönnuð með það markmið að vera hraðvirk, látlaus og einföld í notkun.
Eftir eina klst. í hleðslustöðinni getur þú notað tækin heilan dag, eða í 16 klst. Ef rafhlaða heyrnartækjanna er alveg tóm þá tekur tvær klst. að fullhlaða tækin og þá færðu 20 klst. virkni. Hleðsla á tækjunum er hröð – eftir 15 mínútur í hleðslustöðinni hafa þau virkni í fjórar klst.
Verð: 40.000 kr.
Ath! Áætlaður notkunartími fer eftir notkunarmynstri, hljóðumhverfi, streymingu og aldri rafhlöðunnar.

Ferðahleðslustöð fyrir heyrnartæki
Ferðahleðslustöð gerir þér kleift að hlaða heyrnartækin hvar sem er, annað hvort með því að nota innbyggðan hleðslubanka eða með stöðina tengda við rafmagn. Ferðahleðslustöð hentar t.d. einstaklingum sem ferðast til staða þar sem aðgengi að rafmagni er ótryggt eða ekki til staðar.
Með ferðahleðslustöð þá getur þú fullhlaðið heyrnartækin allt að þrisvar sinnum án þess að hafa stöðina tengda við rafmagn.
Verð: 50.000 kr.


