Kona framkvæmir heyrnarpróf á manni á skrifstofu.

Greining heyrnarskerðingar

Greining heyrnarskerðingar er grundvallarþáttur í heyrnarþjónustu og tryggir að þú fáir rétta ráðgjöf og meðferð við heyrnarskerðingu. Skimun eða heyrnarpróf á netinu eru stundum fyrsta skrefið í greiningarferlinu.


Ítarleg heyrnarmæling er framkvæmd til að greina alvarleika og mögulegar orsakir heyrnarskerðingar. Niðurstöður heyrnarmælinga og mat á áhrifum heyrnarskerðingar á daglegt líf gera okkur kleift að veita þér faglega ráðgjöf um næstu skref eða tilvísun áfram í sérhæfð úrræði.

Meðferð heyrnarskerðingar

Meðferð heyrnarskerðingar felur í sér heildstæða, einstaklingsmiðaða nálgun sem byggir á gagnreyndum klínískum leiðbeiningum.* Mikilvægt er að tryggja tímanlega greiningu, viðeigandi meðferðarúrræði og eftirfylgni.


Við meðferð heyrnarskerðingar leggjum við áherslu á:


- Rétta greiningu og mat á áhrifum heyrnarskerðingar

- Ráðgjöf um notkun og val á heyrnartækjum

- Þjálfun, fræðslu, eftirfylgni og endurhæfingu

- Tilvísanir áfram í sérhæfð úrræði

Kona horfir í spegil á meðan önnur kona lagar hárið á sér. Innandyra, hlutlaust umhverfi.

Notkun og val á heyrnartækjum 

Rétt val og markviss notkun heyrnartækja skiptir höfuðmáli í meðferð heyrnarskerðingar. Við val á heyrnartækjum þarf meðal annars að taka tillit til:


  • Eðli og alvarleika heyrnarskerðingar
  • Áhrifa heyrnarskerðingar á daglegt líf og samskipti
  • Virkni, samskipta og félagslegrar þátttöku
  • Einstaklingsbundinna þarfa og væntinga


Rannsóknir sýna að heyrnartæki geta bætt lífsgæði. Bestur árangur næst með snemmtækri íhlutun, góðri fræðslu, reglulegri notkun og eftirfylgni. 

Þjálfun, fræðsla og eftirfylgni 

Þjálfun og fræðsla eru lykilþættir í því að heyrnartæki gagnist sem best. Við kennum þér að nota heyrnartækin og tengja þau við farsíma, sé þess óskað. Regluleg eftirfylgni, fínstillingar og endurmat hjá okkur tryggja að heyrnartækin gagnist þér sem best. 

Maður í hvítum skyrtu horfir á tölvuskjá, sitjandi á móti ljóshærðum manni, í herbergi með málverki.

Tilvísanir í skoðun eða sérhæfð úrræði

Ef niðurstaða heyrnarmælingar, eyrnaskoðunar eða eyrnasögu gefur tilefni til, þá vísum við þér áfram í skoðun hjá háls-, nef- og eyrnalækni eða öðrum sérfræðingi. Tilvísun í mat á sérhæfðu úrræði eins og t.d. kuðungsígræðslu getur einnig átt við og í þeim tilfellum þá bendum við þér á að leita til Heyrnar- og talmeinastöðvarinnar. Með tilvísun áfram í sérhæft úrræði þá viljum við tryggja að þú fáir þá þjónustu sem hentar þér best. 

* Starfsfólk Heyrnartækni styðst við klínískar leiðbeiningar frá bresku heyrnarfræðisamtökunum þar sem ekki er búið að gefa út sambærilegar leiðbeiningar á Íslandi. Sjá nánar á: https://www.thebsa.org.uk/guidance-and-resources/current-guidance/