
Fyrstu heyrnartækin sem gera allt óséð!
Nýju Zeal frá Oticon munu breyta því hvernig þú hugsar um heyrnartæki. Zeal hafa allt sem þú gætir óskað þér - í ótrúlega nettum búningi.
Zeal eru nýr flokkur inn-í-eyra tækja sem marka tímamót í þróun heyrnartækja. Í fyrsta sinn hefur tekist að sameina gervigreindarstýrða hljóðvinnslu og víðtæka tengimöguleika í smágerðu endurhlaðanlegu heyrnartæki.
Ólíkt hefðbundnum inn-í-eyra heyrnartækjum þá er hægt að máta og stilla Zeal á þig samdægurs.
Minnst sýnilegu, fullbúnu heyrnartæki heims
Fyrir marga sem eru að stíga sín fyrstu skref í notkun heyrnartækja geta áhyggjur af sýnileika tækja og tilfinning um hvernig það er að vera með tæki á eða í eyra, verið hindrun í að leita sér aðstoðar.
Með Zeal getur þú fengið ofurnett inn-í-eyra heyrnartæki án þess að fórna mikilvægum eiginleikum eins og Bluetooth-tengingu, endurhlaðanlegum rafhlöðum og hágæða hljóðvinnslu með gervigreind.


Mátun og stilling samdægurs
Ólíkt hefðbundum inn-í-eyra heyrnartækjum sem krefjast mótatöku, sérsmíði og tímafrekra ferla þá er hægt að máta og stilla Zeal heyrnartæki samdægurs.
Að lokinni heyrnarmælingu getum við skoðað hvort Zeal heyrnartæki henti fyrir þína heyrnarskerðingu og lífsstíl. Við bjóðum þér að fá Zeal heyrnartæki til prufu í vikutíma.
Einstakt útlit og hönnun
Zeal heyrnartækin eru í sérflokki hvað varðar útlit, hönnun og tækni. Zeal eru fyrstu inn-í-eyra heyrnartækin sem sameina eftirfarandi eiginleika: öfluga gervigreind og djúptauganet, þráðlausa hljóðstreymingu, endurhlaðanlegar rafhlöður – allt í ofurlitlu heyrnartæki.
Oticon notar nýstárlega innhylkingartækni (e. encapsulation) til að sameina alla eiginleika Zeal í nettu ytra hylki. Slík framleiðsluaðferð er meðal annars þekkt frá framleiðendum gangráða.
Loftnetið í Zeal er með þríþætta virkni. Það nýtir snertingu við húð til að tryggja sterka og stöðuga tengingu. Það virkar einnig sem útdráttarstrengur og stuðlar að öruggri og þægilegri festu tækis í eyra.


Handfrjáls símtöl og þráðlaus hljóðstreyming
Þú getur tengt Zeal heyrnartækin við farsíma og streymt hljóði þráðlaust frá símanum í heyrnartækin. Zeal heyrnartækin styðja einnig Auracast, sem opnar þér aðgang að nýjum hljóðheimi, meðal annars í opinberum rýmum.
Zeal bjóða upp á snertistýringu sem gerir þér kleift að tvísmella á heyrnartækið til að stilla hljóðstyrk, skipta um stillingu eða svara símanum.
App (smáforrit) fyrir Zeal
Þú getur notað Companion appið frá Oticon með Zeal heyrnartækjunum. Appið gerir þér meðal annars kleift að breyta hljóðstyrk í tækjunum, skipta um stillingu, skoða rafhlöðustöðu tækjanna og leita að heyrnartækjunum.
Zeal heyrnartækin eru einnig fyrstu heyrnartækin sem styðja Google hraðpörun (e. Google Fast Pair), sem gerir pörun við Android-síma afar einfalda.
Notkun appsins með Zeal heyrnartækjum er ekki nauðsynleg, heldur valkvæður möguleiki.

Zeal eru endurhlaðanleg
Njóttu orku sem endist allan daginn. Zeal heyrnartækin frá Oticon koma í fallegri ferðahleðslustöð. Engar einnota rafhlöður. Hröð hleðsla og áreiðanleg frammistaða þegar þú þarft á henni að halda.
Á einni klst. nærðu að hlaða Zeal upp í 16 klst. virkni. Full hleðsla tekur um tvær klst. ef rafhlaða tækjanna er alveg tóm og það skilar þér 20 klst. virkni. Ferðahleðslustöðin gerir þér kleift að hlaða tækin allt að þrisvar sinnum án þess að tengja stöðina við rafmagn.


