
Fyrsta heyrnartækið með tvöföldu gervigreindarkerfi
Reveal heyrnartæki frá Oticon nota tvö sérhæfð gervigreindarkerfi sem vinna saman í rauntíma. Speech AI gerir tal skýrt og greinilegt, á meðan Context AI greinir og varðveitir mikilvæg hljóð úr umhverfinu.
Saman skapa þessi gervigreindarkerfi náttúrulegt jafnvægi milli tals og umhverfishljóða og auðvelda þér að fylgjast með því sem er að gerast í kringum þig.
Með Reveal verður hlustun auðveldari og eðlilegri – hvort sem þú ert að spjalla við vini, njóta samveru með fjölskyldunni eða takast á við fjölbreyttar aðstæður daglegs lífs.
Gervigreind sem hefur lært að þekkja hljóð
Gervigreindarkerfin í Reveal byggja á tveimur djúptauganetum (Deep Neural Networks) sem hafa verið þjálfuð með fjölbreyttum hljóðum úr raunverulegu umhverfi. Þau vinna saman allan daginn, greina hljóðumhverfið og aðlaga hljóðvinnsluna að aðstæðum hverju sinni.
Það besta við þessa háþróuðu tækni er hversu einföld hún er í notkun. Þú þarft ekki að velta fyrir þér hvaða stilling hentar – Reveal greinir aðstæðurnar sjálfkrafa, svo þú getur einfaldlega einbeitt þér að því að hlusta og taka þátt.

Reveal greinir höfuð- og líkamshreyfingar
Oticon var fyrsti heyrnartækjaframleiðandinn sem þróaði og nýtti fjórvíddartækni í hljóðvinnslu heyrnartækja.
Fjórvíddartæknin í Reveal nota innbyggða hreyfiskynjarar til að greina hreyfingar höfuðs og líkama, ásamt hljóðskynjurum sem greina hljóðstyrk, hlutfall tals og hávaða og hvort samtal eigi sér stað, 360° í kringum þig.
Með upplýsingum frá fjórvíddarskynjurum í Reveal þá geta heyrnartækin aðlagað sig nákvæmlega að þínum hlustunarþörfum og veitt þér þann stuðning sem þú þarft hverju sinni..
Reveal styður við hvernig heilinn vinnur úr hljóðum
Reveal byggir á BrainHearing™ hugmyndafræði Oticon. Við heyrum með eyrunum en það er heilinn sem þarf að túlka hljóðin og gefa þeim merkingu.
Til þess þarf heilinn ekki aðeins skýrt tal heldur einnig aðgang að mikilvægum hljóðum úr umhverfinu sem hjálpa til við að skynja það sem er að gerast í kringum okkur.
Gervigreindin í Reveal styður við þessa náttúrulegu úrvinnslu heilans með því að veita honum skýra og ríkulega hljóðmynd – svo auðveldara sé að hlusta, skilja og taka þátt.
Handfrjáls símtöl og þráðlaus hljóðstreyming með Reveal
Reveal heyrnartækin bjóða upp á fjölbreytta þráðlausa tengimöguleika með nýjustu Bluetooth-tækni. Þú getur streymt símtölum, tónlist, hljóðbókum og hlaðvörpum beint í heyrnartækin frá iPhone og völdum Android-tækjum og notað Reveal fyrir handfrjáls símtöl með samhæfðum tækjum.
Ný Bluetooth LE Audio tækni veitir stöðugri tengingu og meiri drægni en áður. Reveal styður einnig AuracastTM og er því hannað með framtíðar þráðlausa tengimöguleika í huga.
Endurhlaðaleg rafhlaða sem dugar allan daginn
Reveal heyrnartækin eru með endurhlaðanlegum rafhlöðu sem duga allan daginn, svo þú getur notað þau frá morgni til kvölds án þess að hlaða.
Það tekur eingöngu eina klukkustund að hlaða Reveal upp í 16 klst. notkun. Ef rafhlaðan er alveg tóm tekur full hleðsla um tvær klukkustundir og skilar þér 20 klst. notkun.
Þú getur valið um að fá hefðbundna hleðslustöð fyrir Reveal heyrnartækin eða ferðahleðslustöð sem gerir þér kleift að hlaða tækin þrisvar sinnum án þess að tengja hleðslustöðina við rafmagn.

Reveal koma í fjórum tækniflokkum
Reveal heyrnartækin eru fáanleg í fjórum tækniflokkum:
1, 2, 3 og 4. Munurinn á tækniflokkunum felst fyrst og fremst í hversu öflug og nákvæm hljóðvinnslan er, sérstaklega við krefjandi hlustunaraðstæður. Eftir því sem ofar dregur í tækniflokki eykst geta tækjanna til að draga úr truflandi hávaða, auðvelda hlustun og aðlagast mismunandi hljóðumhverfi og einstaklingsbundnum þörfum.
Við veitum þér ráðgjöf um hvaða tækniflokkur hentar þér best út frá persónulegu þörfum og getu til að greina tal í hávaða.


