Kona brosir og horfir í spegil. Bak annarrar konu sést. Biðsvæði: tvær sitja í sófa, listaverk á vegg.

Að stíga fyrsta skrefið í átt að betri heyrn

Stærsta skrefið er að taka ákvörðun um að gera eitthvað í málunum þegar þú finnur að heyrnin er farin að daprast. Því fyrr sem þú gerir það, þeim mun betra.


Hröð tækniþróun undanfarin ár hefur umbylt virkni og útliti heyrnartækja. Í dag eru heyrnartæki búin öflugri gervigreindartækni og eru flest endurhlaðanleg. Útlit tækja hefur líka breyst mikið og þú getur valið um falleg og nett heyrnartæki bak við eyra eða smágerð tæki í hlust sem sjást nánast ekki neitt.

Heyrnartæki til prufu í vikutíma

Það hentar mörgum sem eru að fá heyrnartæki í fyrsta sinn að fá tæki til prufu í vikutíma. Það er án endurgjalds – þér að kostnaðarlausu.


Þú þarft að byrja á því að fara í heyrnarmælingu hjá okkur svo við getum veitt þér ráðgjöf um val á heyrnartæki sem hentar þér og stillt nákvæmlega eftir heyrninni þinni.


Við hvetjum þig til að nota heyrnartækin sem mest á lánstímanum og prófa þig áfram í ólíkum aðstæðum.

Kona með ljóst hár stendur við skrifborð, andspænis konu með sítt ljóst hár.

Kaup eða skil á heyrnartæki

Eftir að við höfum stillt á þig heyrnartæki til prufu þá gefum við þér tíma hjá okkur aftur að viku liðinni. Í tímanum förum við yfir hvernig gekk að nota heyrnartækin og hvort breyta þurfi stillingu tækjanna út frá upplifun þinni.


Þú getur í framhaldinu tekið ákvörðun um hvort þú viljir bæta heyrnina og kaupa heyrnartæki eða skila tækjunum.