Ljóshærð kona við móttöku, brosandi til annarrar ljóshærðrar konu sem stendur fyrir framan hana.

Aðstoð og viðgerðir

Starfsfólk Heyrnartækni hefur áratuga reynslu í meðferð heyrnarskerðingar og notkun heyrnartækja. Framlínufólkið okkar í afgreiðslunni eða á verkstæðinu getur aðstoðað þig við einfalda hluti eins og að skipta um mergsíu og keilu eða hjálpa þér að tengja síma við heyrnartæki.


Þú þarft ekki að bóka tíma hjá okkur til að fá aðstoð með ofangreinda hluti. Við reynum eftir bestu getu að leysa málin eins fljótt og vel og hægt er.

Tenging við farsíma

Hægt er að tengja flesta farsíma við heyrnartæki. Með farsímatengingu þá getur þú streymt hljóði frá símanum beint í heyrnartækin. Við aðstoðum þig við tengja símann við heyrnartækin og setja upp app sem gerir þér m.a. kleift að breyta hljóðstyrk eða skipta um stillingu í tækjunum ef heyrnarfræðingurinn hefur sett inn sérstillingar í tækin.


Ath! Það er ekki nauðsynlegt að tengja farsíma við heyrnartækin og það hentar ekki öllum.

Skipt um stöðluð eyrnastykki og mergsíu

Flest heyrnartæki eru með stöðluð eyrnastykki sem eru á enda hátalarasnúrunnar. Það er nauðsynlegt að skipta um eyrnastykkið að minnsta kosti mánaðarlega.


Mergsíur vernda hátalarasnúrur á heyrnartækjum fyrir merg og óhreinindum. Ef mergsían stíflast þá þarf að skipta um hana.


Starfsfólk okkar í afgreiðslu og á verkstæði getur aðstoðað þig við að skipta um eyrnastykki eða mergsíu ef þú ert ekki viss um hvernig eigi að gera það eða átt í erfiðleikum með að handleika smáa hluti.

Bilanir og viðgerðir

Eins og önnur raftæki þá geta heyrnartæki bilað. Oft er um minniháttar bilun að ræða, eins og t.d. skemmd á hátalarasnúru eða óhreinindi í hljóðnemaopum.


Ef heyrnartækið þitt bilar þá skaltu hafa samband og koma tækinu til okkar. Í mörgum tilfellum þá getum við gert við heyrnartækið á staðnum en stundum þarf að senda tækið út til framleiðanda í viðgerð.

Hönd heldur á brúnu og silfurlituðu heyrnartæki sem er sett á bak við eyrað.

Ending og ábyrgð heyrnartækja

Heyrnartæki eru hönnuð til daglegrar notkunar og endast almennt í 4–6 ár. Ending heyrnartækja fer þó eftir notkun, viðhaldi og gæðum tækjanna. Með reglulegri þjónustu og góðri umhirðu geta þau enst lengur.


Flestir kjósa að endurnýja heyrnartæki eftir 5–6 ár, bæði vegna eðlilegs slits og eins vegna hraðrar tækniþróunar sem skilar betri hljóðvinnslu, tengimöguleikum og talgreiningu.


Heyrnartækin eru með alþjóðlega ábyrgð frá framleiðanda sem nær yfir framleiðslugalla á tækinu sjálfu. Ef bilun má rekja slæmrar meðferðar, slysa eða viðgerðar sem ekki er framkvæmd af fagaðila þá gildir ábyrgðin ekki.