
Af hverju skiptir heyrnin máli?
Heyrnin er eitt af okkar mikilvægustu skilningarvitum. Hún gerir okkur kleift að vera í samskiptum við aðra, njóta tónlistar, heyra hljóð í kringum okkur og bregðast við þeim eftir aðstæðum.
Að bæta heyrnina snýst um svo miklu meira en tíðnisvið og desibel – mikilvægast er að bæta getu þína til að taka fullan þátt í lífinu með fólkinu sem þér þykir vænt um.
Ástæður til að bregðast við heyrnarskerðingu
Heyrnarskerðing hefur ekki aðeins áhrif á getu okkar til að eiga samskipti við aðra, hún getur líka haft áhrif á andlega og líkamlega líðan. Aukin áreynsla við að hlusta getur valdið þreytu og leitt til þess að félagsleg samskipti verða erfiðari.
Góð heyrn gerir þér kleift að slaka á í samræðum, því þá þarf heilinn ekki að eyða jafn mikilli orku í að skilja og giska á hvað aðrir eru að segja. Með því að gefa heilanum skýra og heildstæða hljóðmynd þá verður auðveldara að heyra og jafnvel muna það sem sagt er.

Hvernig lýsir heyrnarskerðing sér?
Heyrn breytist oft á löngum tíma og stundum er erfitt að átta sig á breytingunni. Hér eru nokkur dæmi um hvernig skert heyrn getur lýst sér:
- Þér finnst þú heyra, en skilur samt ekki alltaf hvað er sagt. Það er eins og orðin skiljist ekki vel eða renni saman.
- Þér líður eins og þú sért með hellutilfinningu eða bómull í eyrunum.
- Þú verður þreytt/ur á að hlusta í bakgrunnshávaða
- Þú velur á milli þess að biðja fólk um að endurtaka sig eða þykjast hafa heyrt!


