Kona skoðar eyra manns með otoskopi í klínískri umgjörð; þau standa fyrir framan innrömmuð skjöl.

Viðtal og eyrnaskoðun

Þegar þú kemur til okkar í heyrnarmælingu þá byrjum við á að spyrja þig nokkurra spurninga sem skipta máli varðandi heyrn þína og eyrnasögu. Við förum vel yfir í hvaða aðstæðum þú ert að upplifa erfiðleika við að heyra og hvað þú vilt mögulega gera til að bæta úr því.


Áður en við heyrnarmælum þig er nauðsynlegt að skoða eyrun, meðal annars til að ganga úr skugga um að þau séu ekki stífluð af eyrnamerg og að ytra eyra, hlust og hljóðhimna séu eðlileg.

Heyrnarmæling

Heyrnarmæling er framkvæmd í hljóðeinangruðum klefa og við notum mælitæki í eða yfir eyru og beinleiðnimæli sem er settur á bak við eyra.


Í heyrnarmælingu mælum við hversu vel þú heyrir ólíka tóna, allt frá djúpum bassatónum upp í bjarta hátíðnitóna.


Þú ýtir á hnapp í hvert sinn sem þú heyrir tón, sama hversu veikur eða daufur hann er. Þannig getum við fundið heyrnarþröskuldinn hjá þér eða lægsta hljóðstyrk sem þú þarft til að heyra þessa tóna.


Niðurstaða heyrnarmælingar kemur síðan fram á heyrnarriti.

Hljóðrit sem sýnir heyrnarþröskulda, með betri heyrn á lægri tíðnum.

Hvað er heyrnarrit?

Heyrnarrit er línurit sem sýnir lægsta hljóðstyrk (dB) sem þú þarft til að heyra ákveðna tóna (Hz) eða tíðnisvið sem eru mikilvæg fyrir talmál.


Við heyrnarmælingu eru notaðir „hreinir tónar” (e. pure tones) en hreintónamæling er hornsteinn heyrnargreiningar um allan heim. Við mælum eitt eyra í einu og niðurstaða fyrir hægra eyra er merkt með rauðum hring [0] og vinstra eyra með bláu [X] merki.


Heyrnarritið sýnir okkur hvaða hljóð í talmáli þú heyrir vel eða illa og gerir okkur kleift að meta þörf fyrir notkun heyrnartækja og/eða annarra hjálpartækja.

Talheyrnarpróf (Speech Audiometry)

Talheyrnarpróf er mikilvægur þáttur í heyrnargreiningu. Í flestum tilfellum er talgreiningarpróf (Word Recognition Threshold) notað og í sumum tilfellum er einnig framkvæmt talþröskuldspróf (Speech Recognition Threshold). Í talheyrnarprófi hlustar þú á orð í gegnum heyrnartól og þarft að endurtaka það sem þú heyrir.


Talheyrnarpróf mælir prósentu orða eða atkvæða í orðum sem þú endurtekur rétt í ákveðnum hljóðstyrk. Talþröskuldsprófið byggir á því að kanna við hvaða hljóðstyrk þú heyrir og endurtekur rétt, 50% tveggja atkvæða orð.