
Ráðgjöf eftir heyrnarmælingu
Strax að lokinni heyrnarmælingu hjá okkur þá förum við yfir niðurstöðurnar og veitum þér ráðgjöf um næstu skref.
Í flestum tilfellum eru heyrnartæki fyrsta lausnin við heyrnarskerðingu. Við förum vel yfir þau heyrnartæki sem gætu hentað þér, útskýrum mun milli tækniflokka og veitum ráðgjöf um önnur hjálpartæki, sé þörf á því.
Sum heyrnarvandamál krefjast frekari skoðunar hjá háls-, nef- og eyrnalækni. Ef niðurstaða heyrnarmælingar, eyrnaskoðunar eða annarra mælinga gefur tilefni til þá bjóðum við þér aðstoð við að bóka tíma hjá sérfræðingi.
Velkomið að hafa aðstandanda með þér
Mörgum finnst gott að hafa maka, fjölskyldumeðlim, vin eða vinkonu með sér í fyrstu heimsókn og ráðgjöf. Það getur hjálpað þér og þínum nánustu að fara saman yfir niðurstöðu heyrnarmælingar og þeirrar ráðgjafar sem við veitum.
Nánustu aðstandendur geta oft veitt mikilvægar upplýsingar um hvernig þeir upplifa breytta heyrn hjá þér, eins og t.d. í hvaða aðstæðum þú heyrir ekki nógu vel.

Kennsla í notkun heyrnartækja
Þegar þú færð heyrnartæki hjá okkur, þá kennum við þér hvernig þú notar heyrnartækin, setur þau í eyru og hleður meðan þú sefur.
Við förum yfir mikilvæg atriði varðandi umhirðu og þrif á heyrnartækjum, eins og að skipta um mergsíu eða keilu á heyrnartækjunum.
Hægt er að tengja flesta snjallsíma við heyrnartæki og ef þú vilt hafa app í símanum fyrir heyrnartækin þá getum við sett það upp fyrir þig og kennt þér að nota það. App fyrir heyrnartæki er ekki nauðsynlegt og hentar ekki öllum.
Endurkomur og fínstillingar
Ef þú hefur keypt hjá okkur heyrnartæki þá bjóðum við þér að koma í endurkomutíma, mánuði eftir að þú fékkst tækin. Í þessum tíma förum við yfir hvernig gengur að nota tækin og hvort gera þurfi einhverjar breytingar eins og t.d. að hækka eða lækka hljóðstyrk.
Allir okkar viðskiptavinir geta bókað hjá okkur tíma í fínstillingu á heyrnartækjum, þeim að kostnaðarlausu. Við hvetjum þig til að hafa samband og bóka hjá okkur tíma ef þig vantar aðstoð með heyrnartækin eða þarft að láta stilla hljóðið betur.


