Nútímaleg bygging með fánum með merkjunum „Demant“ og „Oticon“. Tveir ganga um lóðina.

Oticon

Heyrnartækni er umboðsaðili fyrir danska fyrirtækið Oticon sem er einn elsti, stærsti og virtasti heyrnartækjaframleiðandi í heiminum.


Oticon hefur allt frá upphafi verið í fararbroddi í þróun heyrnartækja og byggir starfsemi sína á vísindarannsóknum og nýsköpun með ríka áherslu á þarfir notenda.

Saga Oticon

Hans Demant var danskur frumkvöðull sem lagði grunn að einu áhrifamesta heyrnartækjafyrirtæki heims. Hvati hans var persónulegur: eiginkona hans, Camilla Demant, missti heyrnina á unga aldri. Hans Demant leitaði lausna til að hjálpa henni að taka þátt í daglegu lífi og samskiptum.


Árið 1904 útvegaði hann Camillu eitt af fyrstu heyrnartækjum heims og hóf í kjölfarið að þróa heyrnartæki í Danmörku. Þetta markaði upphaf fyrirtækisins Oticon, sem frá fyrstu tíð byggði starfsemi sína á umhyggju, nýsköpun og raunverulegum þörfum notenda.

Glóandi blár gagnastraumur með táknum sem flæða úr stílfærðu skýi.

Heyrnartæki sem breyta lífi fólks

Oticon þróar og framleiðir heyrnartæki fyrir einstaklinga með allar gerðir heyrnarskerðingar, allt frá vægri til alvarlegrar.


Sem leiðandi aðili í hönnun og framleiðslu heyrnartækja þá knýr Oticon stöðugt fram tækninýjungar sem byggja á byltingarkenndum rannsóknum á heyrnarskerðingu, hugrænni heilsu og almennri vellíðan.



Nýjungar í heyrnartækjum frá Oticon hafa sýnt fram á raunverulegan ávinning fyrir heyrnartækjanotendur.