Kona með heyrnartól notar fartölvu við skrifborð; blár bakgrunnur.

Þarf ég heyrnartæki?

Heyrir þú illa í fjölmenni eða klið? Finnst þér aðrir tala óskýrt eða hváir þú oft? Með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan þá getur þú nálgast einfalt heyrnarpróf. Hlekkurinn leiðir þig inn á heimasíðu Oticon og prófið er á ensku.


Við ráðleggjum þér að nota heyrnartól og vera í hljóðlátu umhverfi meðan þú tekur prófið. Niðurstaðan getur gefið vísbendingar um hvort þörf sé á að leita sér aðstoðar og bóka tíma í heyrnarmælingu.

Næstu skref

Ef þú upplifir erfiðleika við að heyra í daglegum aðstæðum og niðurstaða heyrnarprófs bendir til þess að þú sért hugsanlega með skerta heyrn þá ráðleggjum við þér að hafa samband við okkur og bóka tíma í heyrnarmælingu.


Heyrnarfræðingarnir okkar geta greint hvort þú sért með heyrnarskerðingu sem tímabært er að meðhöndla. Í framhaldinu getum við stillt á þig heyrnartæki til prufu.

Eyra einstaklings með höndina umlykjandi það, eins og hann eða hún hlustar af athygli.

Hvernig hljómar heyrnarskerðing?

Á heimasíðu Oticon má nálgast einfaldan hermi fyrir heyrnarskerðingu. Þú getur hlustað á þrjú hljóðdæmi og fært stikuna til hægri til að „heyra“ hvernig versnandi heyrn hefur áhrif á það hvernig fuglasöngur, talmál eða tónlist hljómar.