Kona með grátt hár, hendur á gagnaugum, andlit sýnir sársauka og áhyggjur.

Hvað er eyrnasuð eða tinnitus?

Eyrnasuð (tinnitus) er hljóðskynjun eða tilfinning um að heyra hljóð án ytri hljóðgjafa. Talið er að um 12-30% fullorðinna einstaklinga upplifi eyrnasuð og um 3% finna fyrir verulegum óþægindum og vanlíðan vegna eyrnasuðs.


Orsakir eyrnasuðs eru ekki að fullu þekktar en algengt er að eyrnasuð komi fram við breytingar í heyrnarkerfinu eins og t.d. við heyrnarskerðingu, eyrnabólgu, mergstíflu eða Méníéres.


Eyrnasuð getur t.d. hljómað eins og suð, vatnsniður, flaut, marr eða jafnvel tónlist. Hljóðið getur verið stöðugt eða komið og farið. Það getur verið í öðru eyra, báðum eða höfðinu.

Eyrnasuð og heyrnartæki

Talið er að um 75% einstaklinga sem eru með heyrnarskerðingu séu með eyrnasuð. Í sumum tilfellum getur eyrnasuð verið fyrsta einkennið sem fólk tekur eftir þegar heyrnin dofnar.


Hjá einstaklingum með heyrnarskerðingu þá getur notkun heyrnartækja létt á eða dregið úr eyrnasuði. Í vissum tilfellum er hægt að nota sérstaka Tinnitus stillingu í heyrnartækjum frá Oticon. Um er að ræða nokkrar tegundir af hljóðum sem geta létt á eyrnasuði. Tinnitus hljóð er valið í stillingartíma hjá heyrnarfræðingi og viðkomandi getur kveikt á því eftir þörfum, til að fá smá hvíld frá eyrnasuðinu eða gera það minna áberandi.

Hönd sem heldur á ljósbrúnu heyrnartæki, litlu tæki með slöngu og eyrnatapp.
Maður með gleraugu og skegg liggur í sófa, með lokuð augun og hendurnar fyrir aftan höfuð.

Almennar ráðleggingar

Það er ekki eitt ákveðið ráð sem virkar á alla þar sem upplifun eyrnasuðs er einstaklingsbundin. Í grunninn er mikilvægt að afla sér upplýsinga um eyrnasuð og finna leiðir til að draga úr áhrifum þess.


Eyrnasuð verður gjarnan áberandi í kyrrátu umhverfi, eins og t.d. þegar fólk fer að sofa. Í þannig aðstæðum, hjálpar það sumum að hlusta á tónlist, náttúruhljóð eða hljóðbók. Mikilvægt er að hljóðgjafinn sé örlítið lægri en eyrnasuðið. Hugræn atferlismeðferð hefur einnig reynst gagnleg.

Hvenær á að leita sér aðstoðar?

Í vissum tilfellum er mikilvægt að leita sér aðstoðar hjá heilsugæslunni eða háls-, nef- og eyrnalækni vegna eyrnasuðs. Sem dæmi má nefna:


- eyrnasuð í öðru eyra og því fylgir óútskýrt heyrnartap

- skyndileg breyting á heyrn og eyrnasuð

- skyndilegt eyrnasuð og svimi

- skyndilegt púlserandi eyrnasuð

- eyrnasuð sem hefur veruleg áhrif á svefn og andlega líðan

Heimildir:

British Society of Audiology, 2021. Practice Guidance: Tinnitus.

Heilsuvera: Eyrnasuð