Fimm heyrnartæki í eyranu af mismunandi stærðum í röð, beige á litinn.

Own - sérsmíðuð heyrnartæki

Engir tveir einstaklingar eru nákvæmlega eins. Öll höfum við okkar persónulega stíl og þarfir sem taka þarf tillit til þegar verið er að velja heyrnartæki.  


Own eru sérsmíðuð heyrnartæki frá Oticon, hönnuð til að veita þér hámarks þægindi og framúrskarandi hljómgæði.


Minnstu Own heyrnartækin eru ósýnileg í eyrum hjá 9 af hverjum 10 einstaklingum.

Framúrskarandi tækni í Own

Own heyrnartækin frá Oticon eru með innbyggðu djúptauganeti sem hefur verið þjálfað með milljónum hljóðdæma. Þessi tækni gerir Own kleift að þekkja og meðhöndla hljóð af einstakri nákvæmni þannig að þú getir notið einstakrar hljóðupplifunar. 


Own heyrnartækin veita þér aðgang að öllu hljóðsviðinu og færa þér skýrleika og skerpu milli bakgrunnshávaða og talmáls. Með Own verður auðveldara að fylgja eftir samræðum í krefjandi aðstæðum.

Maður heldur á litlum hlut utandyra, blár himinn í bakgrunni.

Own er fáanlegt í nokkrum tækni- og stærðarflokkum

Own heyrnartækin frá Oticon er hægt að fá í ólíkum stærðum og val á þeim fer meðal annars eftir þörfum hvers og eins færni til að handleika tækin. 


Own heyrnartækin koma í fimm tækniflokkum. Munurinn á þessum flokkum felst auk annars í því hversu mikið tækin geta dempað hávaða í kringum þig. 


Við munum veita þér ráðgjöf um hvaða stærð og tækniflokkur hentar þér best, út frá þínum persónulegu þörfum.