Heyrnartækni í 25 ár – frá frumkvöðlastarfi til framtíðar
Persónuleg reynsla varð að hugmynd
Heyrnartækni hóf starfsemi í júní 2001 sem fyrsta einkarekna heyrnartækjastöðin á Íslandi.
Aðdragandinn á rætur að rekja til persónulegrar reynslu Víðis Páls, föður Björns Víðissonar, annars
stofnanda fyrirtækisins.
Víðir hafði glímt við heyrnarskerðingu eftir langvarandi eyrnasýkingar. Þegar hann þurfti
heyrnartæki var biðin allt að 18 mánuðir. Hann leitaði því til Oticon í Danmörku og fékk vönduð
heyrnartæki og góða þjónustu á aðeins tveimur dögum.
Reynslan vakti spurningu: Hvers vegna ætti ekki að vera hægt að veita sambærilega þjónustu á
Íslandi? Þannig varð hugmyndin að Heyrnartækni til.
Valfrelsi og styttri bið eftir heyrnartækjum
Tilkoma Heyrnartækni var nýjung á íslenskum heilbrigðismarkaði sem stytti bið eftir
heyrnartækjum verulega og kallaði á mótun umgjarðar um nýja einkarekna heilbrigðisþjónustu.
Árið 2002 hóf Heyrnartækni samstarf við Árna Hafstað, heyrnar- og talmeinafræðing, um veitingu
heyrnarþjónustu á landsbyggðinni. Heyrnartækni varð þannig fyrst til að bjóða reglulega heyrnarþjónustu á fjölda staða þar sem hún hafði ekki áður verið í boði.
Fyrstu árin greiddu viðskiptavinir heyrnartækin að fullu sjálfir. Opinber niðurgreiðsla hófst 2003, en var takmörkuð með kvóta. Heyrnartækni lagði mikla vinnu í að fá því fyrirkomulagi breytt.
Markmiðið var að styrkurinn fylgdi einstaklingnum og fólk hefði raunverulegt val um hvar það
sækti þjónustu og keypti heyrnartæki.
Í ársbyrjun 2007 var kvótinn afnuminn og sjúkratryggðir einstaklingar gátu fengið styrk vegna
kaupa á heyrnartækjum hjá rekstrarleyfishöfum á borð við Heyrnartækni. Þetta var mikilvægur
áfangi í átt að auknu valfrelsi fólks með heyrnarskerðingu.
Í dag metur heyrnarfræðingur heyrn og hlustunarþarfir hvers og eins. Oftast er hægt að máta og
stilla heyrnartæki samdægurs og viðskiptavinum býðst vikulöng prufa.
Fjölskyldufyrirtæki og fagleg þróun
Björn Víðisson, eigandi og framkvæmdastjóri, hefur gegnt lykilhlutverki í uppbyggingunni og
aflaði sér sérhæfðrar þekkingar og þjálfunar hjá Oticon. Anna Linda Guðmundsdóttir, eiginkona
hans, hóf störf 2006. Hún er heyrnarfræðingur og hjúkrunarfræðingur.
Fjölskyldutengsl meðal starfsfólks hafa mótað náinn og persónulegan starfsanda. Í dag starfa þar
meðal annars faðir og bróðir Önnu Lindu, auk skrifstofustjóra og þriggja systurdætra hennar.
Starfsfólk fylgist vel með tækninýjungum og sækir reglulega námskeið hér heima og erlendis.
Meira en heyrnartæki
Samstarfið við Oticon hefur staðið frá stofnun. Á aldarfjórðungi hefur tækninni fleygt fram og
heyrnartæki orðið minni, öflugri og sjálfvirkari. Nútímatæki eru flest endurhlaðanleg, tengjast
farsímum og nýta gervigreind við úrvinnslu tals og umhverfishljóða.
Jafnvel besta heyrnartækið er aðeins hluti af lausninni. Rétt val, stilling tækja, einstaklingsmiðuð
ráðgjöf og góð eftirfylgd eru lykilatriði til að ná sem bestum árangri. Aðgengi að faglegri þjónustu
til lengri tíma er ekki síður mikilvægt. Áhersla á þjónustu við viðskiptavini hefur frá upphafi verið
einn af hornsteinum Heyrnartækni.
Nýr kafli í Síðumúla 24
Þann 19. október flutti Heyrnartækni úr Glæsibæ í sérhannað húsnæði í Síðumúla 24. Áhersla var
lögð á fyrsta flokks aðstöðu, góða hljóðvist og hlýlegt, aðgengilegt umhverfi. Stöðin er búin
vönduðum mæli- og greiningarbúnaði og sérsmíðuðum heyrnarmælingaklefum. Í nýja húsnæðinu er gott næði til ráðgjafar og kennslu í daglegri notkun heyrnartækja.
Á 25 árum hefur Heyrnartækni vaxið og þróast, en grunnhugsunin að baki fyrirtækinu hefur lítið
breyst: að veita fólki með heyrnarskerðingu faglega og persónulega þjónustu án óþarfa biðar og
vönduð heyrnartæki sem taka mið af þörfum hvers og eins.
Flutningurinn í Síðumúla markar nýtt skref á þeirri vegferð, en markmiðið er áfram hið sama og
varð kveikjan að stofnun fyrirtækisins:
Betri heyrn – bætt lífsgæði.
