
Intent heyrnartæki - með fjórvíddartækni
Intent eru fullkomnustu heyrnartækin frá Oticon og fyrstu heyrnartækin í heiminum sem eru með fjórvíddarskynjurum, tækni sem tekur m.a. tillit til höfuð- og líkamshreyfinga notandans.
Intent eru með háþróaða gervigreindartækni og djúptauganet sem hefur verið þjálfað með milljónum hljóðdæma. Þessi tækni gerir Intent kleift að „vita” hvernig hljóð eiga að hljóma og færir þér þannig nákvæmari hljóðupplifun.
Intent greinir höfuð- og líkamshreyfingar
Höfuðhreyfingar gegna mikilvægu hlutverki við að móta hljóðupplýsingar sem ná til okkar og geta tekið breytingum eftir því hvernig við snúum höfðinu.
Intent búa yfir einstakri fjórvíddartækni sem leggur grunninn að hljóðvinnslu í tækjunum. Skynjarar í Intent nema og greina höfuð- og líkamshreyfingar, samtalsvirkni og hljóðumhverfið 360° í kringum þig.
Þannig geta Intent aðlagað sig nákvæmlega að þínum hlustunarþörfum og veitt þér hámarkshjálp þegar þú þarft á henni að halda

Intent heyrnartækin styðja við hvernig heilinn vinnur úr hljóðum
Heilinn fylgist stöðugt með hljóðum í kringum þig, bæði í forgrunni og bakgrunni. Hljóðin sem þú veitir eftirtekt ráðast aðallega af hlustunaráformum hverju sinni.
Intent heyrnartækin búa yfir BrainHearing tækni sem sérfræðingar hjá Oticon hafa þróað, til að líkja eftir því hvernig heilinn vinnur úr hljóðum. Intent heyrnartækin fanga hvert smáatriði og hjálpa þannig heilanum og þér að taka þátt í samræðum og njóta lífsins.
Handfrjáls símtöl og þráðlaus
hljóðstreyming með Intent
Intent heyrnartækin eru með Bluetooth sem býður upp á margs konar tengimöguleika við önnur tæki. Þú getur notað Intent heyrnartækin sem þráðlaus heyrnartól með iPhone og ákveðnum tegundum af Android-símum.
Njóttu þess að streyma hljóðbók eða hlusta á hlaðvarp með Intent heyrnartækjunum þínum. Þú getur einnig streymt hljóði þráðlaust frá sjónvarpinu í Intent heyrnartækin með sérstöku sjónvarpsboxi frá Oticon.

Intent eru endurhlaðanleg heyrnartæki
Intent heyrnartækin eru endurhlaðanleg. Með því að velja endurhlaðanleg heyrnartæki þá losnar þú við umstang sem fylgir reglulegum rafhlöðuskiptum. Þú hleður heyrnartækin meðan þú sefur. Full hleðsla tekur eingöngu 2 klst. sem tryggir þér 20 klst. virkni.
Við ráðleggjum þér að geyma heyrnartækin í hleðslustöðinni meðan þau eru ekki í notkun.
Intent koma í fjórum tækniflokkum
Intent heyrnartækin eru fáanleg í fjórum tækniflokkum: 1, 2, 3 og 4. Munurinn á þessum flokkum flest meðal annars í getu tækjanna til að dempa hávaða í kringum þig.
Við munum veita þér ráðgjöf um hvaða tækniflokkur hentar þér best, út frá þínum persónulegu þörfum og getu til að greina tal í hávaða.


