Þráðlaus aukabúnaður

Þráðlaus hljóðstreyming frá iPhone, iPad og Android símum
Þú getur auðveldlega streymt símtali, tónlist eða hljóðbók úr iPhone eða iPad í Oticon heyrnartæki*. Android símar með ASHA bjóða upp á þráðlausa hljóðstreymingu frá síma í heyrnartækin. Nýrri gerðir Android síma, sem eru með Bluetooth LE Audio bjóða einnig upp á þráðlausa hljóðstreymingu og handfrjálsa notkun með síma**.
*Virkar með iPhone 11 með iOS 15.2 eða nýrri kynslóð/uppfærslu eða iPad með iPad OS 15.2
**Virkar með Android snjallsímum með Bluetooth LE Audio og AndroidOS 14 eða nýrri uppfærslu

Handfrjáls símtöl
Ef þú ert með iPhone getur þú streymt hljóði úr símanum í Oticon heyrnartæki og hljóðnemi í heyrnartækjunum sendir hljóð/talmál þráðlaust í símann*. Ákveðnar tegundir Android síma bjóða upp á þráðlausa hljóðstreymingu** og nýjustu Android símarnir sem eru með Bluetooth LE Audio bjóða upp á tvíhliða hljóðstreymingu, þ.e. úr síma í heyrnartækin og til baka frá heyrnartækjunum í símann. EF Android síminn þinn er ekki með innbyggt LE audio þá getur þú notað Easy LE millistykki fyrir þráðlausa streymingu
*Virkar með iPhone 11 með iOS 15.2 eða nýrri kynslóð/uppfærslu
**Android síminn þarf að vera með ASHA til að leyfa þráðlausa hljóðstreymingu og Bluetooth LE Audio fyrir tvíhliða streymingu

Oticon Companion App
Með Oticon Companion appinu getur þú á einfaldan hátt stýrt heyrnartækjunum með snjallsímanum þínum. Oticon Companion appið gerir þér kleift að breyta hljóðstyrk, skipta um stillingar, skoða rafhlöðustöðu og leita að heyrnartækjunum.

Easy LE millistykki
Fáðu betri gæði við hlustun með Easy LE millistykki – nett lausn til að tengja Android™ síma, spjaldtölvur eða tölvur með USB-C við heyrnartæki með LE Audio tækni. Njóttu tónlistar, hlaðvarpa og handfrjálsra símtala með skýru og hágæða hljóði í gegnum nýjustu Bluetooth® LE Audio tæknina.
Auðveld pörun: Tengdu og paraðu á örfáum sekúndum – engin flókin uppsetning.
Hágæða hljóð: Streymdu og hringdu með framúrskarandi hljómgæðum.
USB-C samhæfni: Virkar með flestum nýjustu Android™ tækjum og tölvum.
Færanlegt og þægilegt: Heldur pörun jafnvel þegar skipt er á milli tækja
Hleðsla og tenging: Þú getur hlaðið símann eða spjaldtölvuna á meðan LE Audio millistykkið er í notkun.
Verð: 13.500 kr.

LE Audio
Hvað er LE Audio – og af hverju skiptir það máli fyrir notendur heyrnartækja? LE Audio er ný tækni í Bluetooth sem gerir þér kleift að tengja heyrnartækin þín beint við síma, spjaldtölvu eða tölvu – án millistykkja eða aukabúnaðar (ef heyrnartækin styðja LE Audio streymingu.
Helstu kostir:
- Skýrara og betra hljóð, hvort sem þú ert í símtali, að horfa á myndband eða hlusta á tónlist.
- Minni orkunotkun – þannig að rafhlaða í heyrnartækjunum endist lengur.
- Tveggja eyrna streymi – hljóð fer beint í bæði tæki samtímis, án tafa.
- Einfaldari tenging – ekkert vesen, bara stinga í samband og hlusta/spila
LE Audio er sérstaklega hannað með heyrnartæki í huga og bætir upplifun við hlustun í daglegu lífi – hvort sem það er í vinnu, í samtölum eða afþreyingu.

ConnectClip
Þú getur breytt heyrnartækjunum þínum í þráðlaus heyrnartól með ConnectClip og streymt hljóði úr snjallsímanum þínum í heyrnartækin. ConnectClip er með innbyggðum hljóðnema sem gerir þér kleift að nota farsímann alveg handfrjálst. Þú getur einnig notað ConnectClip sem fjarhljóðnema, t.d. á fyrirlestrum. Hljóðnemann er hægt að festa á þann sem talar og þannig streymist hljóð frá fyrirlesara beint í heyrnartækin þín.
Drægni allt að 20 metrar.
Verð: 52.000 kr

Sjónvarp og tónlist
Þú getur breytt heyrnartækjunum þínum í þráðlaus heyrnartól með sjónvarpsboxinu frá Oticon. Sjónvarpsboxið gerir þér kleift að:
- Streyma hljóði þráðlaust frá sjónvarpinu í heyrnartækin
- Velja þann hljóðstyrk sem passar þér best án þess að hafa áhrif á þann hljóðstyrk sem aðrir í kringum þig kjósa að velja
- Nota Oticon Companio appið sem fjarstýringu fyrir hljóðstyrk sem streymt er úr sjónvarpinu
Drægni allt að 15 metrar.
Verð: 32.000 kr

Þráðlausir tengimöguleikar
Heyrnartæki frá Oticon eru fyrstu tækin í heiminum sem geta tengst öðrum tækjum á internetinu. Þú getur fengið tilkynningu í heyrnartækin þegar einhver hringir dyrabjöllunni þinni eða látið heyrnartækin kveikja á ljósunum heima hjá þér. Möguleikarnir eru óteljandi. Notaðu Oticon Companion appið til að tengjast öðrum internettengdum snjalltækjum sem eru samhæfð tækni IFTTT.com.