Stutt heyrnarpróf

Þarf ég heyrnartæki?
Heyrir þú illa í fjölmenni eða klið? Hváir þú oft? Taktu stutt heyrnarpróf til að kanna hvort þú sért með einhver einkenni heyrnarskerðingar. Prófið gefur vísbendingar um hvort þörf sé á að leita sérfræðiaðstoðar og láta mæla heyrnina.
Taktu prófið hér að neðan.
Stutt heyrnarpróf
Merktu við það sem á við þig.

Kemur niðurstaðan á óvart?
Heyrninni getur hrakað mjög hægt, svo hægt að oft er erfitt að átta sig á breytingunni. Í raun eru líkur á að vinir, samstarfsmenn eða fjölskyldumeðlimir átti sig á vandamálinu á undan þér. Þeir þurfa oft að endurtaka það sem þeir segja við þig eða hafa orð á því að þú sért ekki að hlusta. Þeir geta orðið pirraðir á hávaðanum sem kemur frá sjónvarpinu vegna þess hve hátt það er stillt. Einnig geta þeir furðað sig á því hvers vegna þú ferð ekki til dyra þegar dyrabjöllunni er hringt eða svarar ekki þegar síminn hringir.
Athugaðu að þetta próf kemur ekki í staðinn fyrir heyrnarmælingu með heyrnarmæli en niðurstöðurnar geta gefið vísbendingar um hvort þörf sé á að meta heyrn þína hjá fagmanni.