
FrontRow To Go
FrontRow To Go
FronRow To Go hljóðkerfið er afar einfalt í uppsetningu og notkun en það tekur rétt um 5 mínútur að setja kerfið upp. Ótvíræður kostur við To Go að auðvelt er að færa það á milli kennslustofa og jafnvel hægt að nota það utandyra. Innbyggð endurhlaðanleg rafhlaða er í hátalarasúlunni sem dugar í 5 klst. án rafmagns.
Hægt er að nota tvo hljóðnema samtímis með To Go kerfinu sem gefur kennaranum nýja möguleika í kennsluaðferðum en annan hljóðnemann er t.d. hægt að láta nemendur nota við upplestur og fl.
To Go er síðan hægt að tengja við annan tækjabúnað t.d. sjónvarp, útvarp, geislaspilara og jafnvel iPod sem gefur möguleika á að varpa hljóði úr þessum tækjum um kennslustofuna.
FrontRow To Go samanstendur af:
- Hátalarasúlu sem er í senn móttakari og stjórnstöð
- Líkamsbornum sendi fyrir kennara ásamt hljóðnema
- Þráðlausum handhljóðnema
- Hleðslutæki fyrir líkamsborinn sendi og handhljóðnema
- Endurhlaðanlegar rafhlöður
- Snúrur til að tengja To Go við annan tækjabúnað
Þú getur fengið nánari upplýsingar um FrontRow með því að smella hér