ActoActo eru frábær heyrnartæki í milliverðflokki frá Oticon. Acto heyrnartækin búa yfir endurbættri örtölvutækni og virkni þeirra er því mun meiri en í eldri heyrnartækjum í sama flokki. |  | Betra hljóð Acto heyrnartækin eru hlaðin þróaðri tækni sem hjálpar þér að heyra skýrt og eðlilega. Tæknin í Acto gerir talmál skýrara og auðveldar þér að takast á við hávaða þannig að betra verður að greina mikilvæg hljóð í hávaðasömum aðstæðum. Betri tengingar Með ConnectLine búnaðinum getur þú sent hljóð úr mikilvægum hljóðgjöfum þráðlaust í Acto heyrnartækin. Þannig getur þú hlustað á sjónvarpið í gegnum heyrnartækin, talað í heimasímann eða farsímann á einfaldan og skýran hátt. Betra útlit Acto eru svo nett og fallega hönnuð að þú getur verið með þau án þess að finna fyrir þeim og ólíklegt er að aðrir taki eftir því að þú sért með heyrnartæki. Acto heyrnartækin koma í tveim tækniútgáfum; Acto Pro og Acto. Báðar tækniútgáfur af Acto henta einstaklingum með væga upp í alvarlega heyrnarskerðingu því tækin er einnig hægt að fá í kraftútgáfu. Smelltu á Acto til að skoða bækling um heyrnartækin. Glæsileg og nett Acto heyrnartækin koma í miklu úrvali lita og tækja. Þú getur valið um minnstu tækin sem eru miniRITE en þau eru nánast því ósýnileg bak við eyrað. RITE og BTE krafttækin eru fyrir einstaklinga með mikla heyrnarskerðingu. Tæki inn í eyra (ITE, ITC og CIC) eru sérsmíðuð eftir eyrum notenda. Þau er einnig hægt að fá í kraftútgáfu. Frábær lausn fyrir þig! Acto heyrnartækin frá Oticon nota þráðlaus samskipti til að veita jafnvægi og samhæfð viðbrögð í báðum eyrum.
Tækni eins og TriState Noise Management og Dynamic Feedback Cancellation vernda þig fyrir hávaða og dregur úr ýli í tækjunum. Á meða dempar Multi-Band Adaptive Directionality tæknin allan hávaða sem kemur til hliðar og bak við þig og hjálpar þér þannig að einbeita þér að talmáli sem þú vilt heyra.
ConnectLine auðveldar þér að nota síma og sjónvarp Sumum reynist erfitt að nota heyrnartækin meðan horft er á sjónvarp eða talað í síma. Símar geta valdið því að tækin fara að ýla og hljóð frá sjónvarpi blandast öðrum umhverfishljóðum. ConnectLine búnaðurinn frá Oticon leysir þetta vandamál með því að senda hljóð frá síma og sjónvarpi -þráðlaust- í Acto heyrnartækin. Þessum búnaði er auðvelt að stjórna með Streymi frá Oticon sem virkar eins og fjarstýring fyrir heyrnartækin og aðra hljóðgjafa.
Smelltu á ConnectLine til að fá nánari upplýsingar | Tegund | 1 tæki | 1 tæki með NG* | 2 tæki | 2 tæki með NG* | | Acto Pro | kr. 184.000 | kr. 153.200 | kr. 361.000 | kr. 299.400 | | Acto | kr. 148.000 | kr. 117.200 | kr. 290.000 | kr. 228.400 | | Sérsmíði / krafthlustarstykki | kr. 16.000 | | kr. 32.000 | | | | | | | | | | | | * NG = Niðurgreiðsla eða styrkur frá Sjúkratryggingum Íslands
|